Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. október 2020 21:05
Victor Pálsson
Einkunnir úr leik Newcastle og Man Utd: Darlow bestur
Mynd: Getty
Manchester United fékk þrjú sterk stig í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið spilaði við Newcastle á útivelli.

Gestirnir fengu enga draumabyrjun en á annarri mínútu varð Luke Shaw fyrir því óláni að gera sjálfsmark og staðan orðin 1-0.

Man Utd svaraði hins vegar á 23. mínútu er Harry Maguire stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu Juan Mata.

Þrjú mörk fylgdu svo í seinni hálfleik en þau gerðu þeir Bruno Fernandes, Aaron Wan-Bissaka og Marcus Rashford í 4-1 sigri þess rauðklædda.

Mirror tók saman einkunnagjöf í kjölfarið og má sjá hana hér fyrir neðan.

Newcastle:
Darlow 8
Krafth 7
Fernandez 6
Lascelles 7
Lewis 6
Hayden 7
Joelinton 6
Hendrick 6
Shelvey 6
Saint-Maximin 7
Wilson 6

Man Utd:
De Gea 7
Wan-Bissaka 7
Lindelof 6
Maguire 7
Shaw 6
McTominey 6
Fred 6
Mata 6
Fernandes 7
James 6
Rashford 7

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner