Ekitike áþjáður í að fara til Liverpool og hefur farið fram á sölu - Wissa vill frekar fara til Tottenham en Newcastle
   fös 18. júlí 2025 09:46
Elvar Geir Magnússon
Flutningabíll fyrir utan heimili Gyökeres
Gyökeres nálgast Arsenal.
Gyökeres nálgast Arsenal.
Mynd: EPA
Portúgalskir fjölmiðlar hafa birt myndir af flutningabíl fyrir utan heimili sóknarmannsins Viktor Gyökeres, leikmanns Sporting í Lissabon.

Arsenal hefur verið í strembnum viðræðum við Sporting um kaup á sænska landsliðsmanninum og þetta þykja sterkar vísbendingar um að samkomulag sé í sjónmáli.

CNN í Portúgal segir að húsgögn hafi verið sett upp í flutningabílinn og ljóst sé að Gyökeres búi sig undir að flytja til Lundúna.

Sjálfur er hann sagður vera í Stokkhólmi og bíði þess að fá grænt ljós á að ferðast til Englands til að ganga frá málum. Hann hefur ekki farið leynt með vilja sinn til að fara til Arsenal.

Mirror segir að síðasta formlega tilboð sem Arsenal hafi lagt fram hafi hljóðað upp á 55 milljónir punda með möguleika á 8,6 milljónum punda til viðbótar. Félögin séu nálægt samkomulagi.


Athugasemdir
banner