Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 17:54
Ívan Guðjón Baldursson
Alisson meiddur - Dregur sig úr landsliðshópnum
33 ára Alisson er með rúmt ár eftir af samningi sínum við Liverpool.
33 ára Alisson er með rúmt ár eftir af samningi sínum við Liverpool.
Mynd: EPA
Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker er að glíma við ný meiðsli og verður því ekki með Liverpool á morgun.

Alisson missir af hádegisleiknum gegn Brighton og dregur sig einnig úr brasilíska landsliðshópnum fyrir landsleikjagluggann sem er framundan.

Hann missti af 1-0 tapi gegn Galatasaray fyrir tíu dögum vegna smávægilegra vöðvameiðsla og er talið að nú sé um ný vöðvameiðsli að ræða.

Alisson stóð sig vel í síðustu tveimur leikjum gegn Tottenham og Galatasaray en núna fær Georgíumaðurinn Giorgi Mamardashvili annað tækifæri á milli stanganna.

Talið er að Alisson verði klár í slaginn fyrir stórleik Liverpool gegn Manchester City í 8-liða úrslitum enska bikarsins 4. apríl.

   20.03.2026 10:57
Staðfestir að Salah fer ekki með til Brighton

Athugasemdir
banner
banner