Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 19:45
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórir úrvalsdeildarleikmenn í ítalska hópnum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Brentford
Gennaro Gattuso landsliðsþjálfari Ítalíu er búinn að velja hópinn sem mætir til leiks í umspilskeppni fyrir langþráðu sæti á lokamóti heimsmeistaramótsins.

Ítalía, sem er næstsigursælasta þjóð í sögu HM með fjóra titla, hefur misst af síðustu tveimur lokakeppnum eftir óvænta tapleiki í umspilum. Fyrst töpuðu Ítalir gegn Svíum í umspili fyrir HM 2018 og svo gegn Norður-Makedóníu í umspili fyrir HM 2022.

Ítalía vann HM síðast 2006 eftir úrslitaleik gegn Frakklandi. Það var síðasti leikur sem Ítalir hafa spilað í útsláttarkeppni HM, þar sem þeir voru slegnir úr leik í riðlakeppninni 2010 og 2014 áður en þeim mistókst að komast á næstu mót þar á eftir.

Ítalir taka á móti Norður-Írlandi í undanúrslitaleik í umspilinu í kvöld. Sigurvegarinn mætir svo sigurvegaranum úr viðureign Wales og Bosníu í úrslitaleik um sæti á HM.

Sigurvegari umspilsins mun leika í B-riðli heimsmeistaramótsins, sem inniheldur heimamenn í Kanada, Katar og Sviss.

Það er mikil pressa á Gattuso þjálfara að koma landsliðinu á lokamótið og tekur hann nokkrar stórar ákvarðanir í liðsvalinu sínu.

Hann velur til að mynda aðeins fjóra leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni þar sem Federico Chiesa fær tækifæri með landsliðinu eftir rúmlega eins árs fjarveru. Chiesa hefur fengið lítinn spiltíma frá félagaskiptum sínum til Liverpool og er búist við að hann snúi aftur í ítalska boltann komandi sumar.

Auk Chiesa má finna Sandro Tonali, Gianluigi Donnarumma og Riccardo Calafiori, sem eru allir mikilvægir leikmenn í enska boltanum, í hópnum. Þar er einnig framherjinn Mateo Retegui sem yfirgaf Atalanta síðasta sumar til að elta peningana til Sádi-Arabíu.

Það kemur á óvart að vængbakverðirnir Destiny Udogie og Michael Kayode, sem leika fyrir Tottenham og Brentford, séu ekki með í hópnum. Udogie er nýlega búinn að jafna sig eftir meiðsli en Kayode hefur verið að spila frábærlega með Brentford.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner