Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Nýtt ungstirni Real Madrid ætlar að spila fyrir Spán
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hinn 18 ára gamli Thiago Pitarch var óvænt í byrjunarliði Real Madrid í 3-0 sigri gegn Manchester City er liðin mættust í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Það var þriðji byrjunarliðsleikur Pitarch í röð en þessi ungi miðjumaður er núna búinn að byrja síðustu fimm leiki Madrídinga.

Hann er fæddur og uppalinn á Spáni en kemur af marokkóskum ættum og getur því valið á milli hvort landsliðið hann vill frekar spila fyrir. Það hefur verið einhver umræða um þetta í spænskum fjölmiðlum síðustu vikur og hefur Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, tjáð sig.

„Við þekkjum Thiago mjög vel frá unglingalandsliðunum, hann er einn af okkur. Við erum mjög rólegir varðandi framtíðina hans útaf því að við vitum að hann vill vera hérna. Þetta er leikmaður með mikla náttúrulega hæfileika sem er að gera frábæra hluti með félagsliðinu sínu," sagði De la Fuente á fréttamannafundi í dag.

„Við verðum að fara varlega og gæta þess að sýna ábyrgð í þróunarferli hans. Eins og staðan er í dag er hann partur af U21 landsliðinu og mun hann vera leiðtogi þar á næstu árum.

„Það leikur enginn vafi á því að hann vill spila fyrir Spán. Tími hans með A-landsliðinu mun koma."


Pitarch á í heildina sjö leiki að baki fyrir U19 og U20 landsliðin.

   13.03.2026 18:34
„Kosta kannski ekki 50 milljónir en fórna sálinni"

Athugasemdir
banner