Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fös 20. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Evrópubarátta og Madrídarslagurinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Villarreal og Real Sociedad eigast við í eina leik kvöldsins í efstu deild spænska boltans, þegar lið mæta til leiks í síðasta sinn fyrir landsleikjahlé.

Búast má við spennandi viðureign á milli tveggja sterkra liða. Villarreal siglir lygnan sjó í meistaradeildarsæti en Sociedad er í harðri baráttu um evrópusæti. Orri Steinn Óskarsson hefur komið við sögu í síðustu þremur leikjum Sociedad í röð.

Á morgun eru fimm leikir á dagskrá þar sem Sevilla og Valencia mætast í spennandi slag um kvöldið.

Stórliðin mæta svo til leiks á sunnudaginn. Topplið Barcelona er á heimavelli gegn Rayo Vallecano og spilar Athletic Bilbao við Real Betis í gífurlega spennandi evrópuslag áður en stórleikur helgarinnar fer fram í Madríd.

Real Madrid spilar þar við nágranna sína í Atlético Madrid á Santiago Bernabéu. Real er í harðri titilbaráttu við Barca og þarf á sigri að halda, á meðan Atlético siglir lygnan sjó við hlið Villarreal í meistaradeildarsæti.

Föstudagur
20:00 Villarreal - Real Sociedad

Laugardagur
13:00 Elche - Mallorca
15:15 Espanyol - Getafe
17:30 Levante - Real Oviedo
17:30 Osasuna - Girona
20:00 Sevilla - Valencia

Sunnudagur
13:00 Barcelona - Rayo Vallecano
15:15 Celta Vigo - Alaves
17:30 Athletic Bilbao - Real Betis
20:00 Real Madrid - Atletico Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 28 23 1 4 77 28 +49 70
2 Real Madrid 28 21 3 4 60 24 +36 66
3 Atletico Madrid 28 17 6 5 47 25 +22 57
4 Villarreal 28 17 4 7 51 33 +18 55
5 Betis 28 11 11 6 43 35 +8 44
6 Celta 28 10 11 7 38 31 +7 41
7 Real Sociedad 28 10 8 10 43 42 +1 38
8 Espanyol 28 10 7 11 35 42 -7 37
9 Getafe 28 10 5 13 23 30 -7 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 40 -10 35
11 Osasuna 28 9 7 12 33 35 -2 34
12 Girona 28 8 10 10 31 43 -12 34
13 Vallecano 28 7 11 10 28 34 -6 32
14 Valencia 28 8 8 12 30 42 -12 32
15 Sevilla 28 8 7 13 37 47 -10 31
16 Mallorca 28 7 7 14 33 45 -12 28
17 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
18 Elche 28 5 11 12 36 45 -9 26
19 Levante 28 5 8 15 30 46 -16 23
20 Oviedo 28 4 9 15 18 44 -26 21
Athugasemdir
banner