Matthijs de Ligt er einn af þremur leikmönnum Manchester United sem eru fjarverandi vegna meiðsla þessa stundina, ásamt Patrick Dorgu og Lisandro Martínez.
Allir leika þeir sem varnarmenn en góð breidd í hópi Rauðu djöflana hefur bjargað varnarlínunni upp á síðkastið.
Michael Carrick bráðabirgðaþjálfari United var spurður út í hollenska miðvörðinn De Ligt sem hefur verið frá keppni síðan í byrjun desember vegna bakmeiðsla.
Þegar De Ligt varð fyrst fyrir meiðslunum sagði Rúben Amorim þáverandi þjálfari að þau væru líklegast smávægileg, en annað hefur komið í ljós.
De Ligt var mikilvægur hlekkur í varnarlínu Man Utd undir stjórn Amorim en Harry Maguire hefur fyllt gríðarlega vel í skarðið ásamt Lisandro Martínez, sem er nú meiddur, og Leny Yoro.
„Það er ómögulegt að segja til um hvenær hann verður tilbúinn, ég vil ekki gefa neinum falskar vonir. Svona getur þetta verið með bakmeiðsli, þau eru oft óútreiknanleg. Eina sem við getum gert er að sýna þolinmæði og gera allt í okkar valdi til að hjálpa Matthijs að snúa aftur á völlinn," sagði Carrick á fréttamannafundi í gær fyrir útileik gegn Bournemouth í úrvalsdeildinni sem fer fram í kvöld.
Það er því óljóst hvort De Ligt muni koma aftur við sögu á tímabilinu og hvort hann verði heill heilsu í tæka tíð fyrir heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku. Hann er 26 ára gamall og með 52 A-landsleiki að baki fyrir Holland.
„Ég veit ekki hvort hann gæti þurft á aðgerð að halda, það er ekki mitt að segja. Við erum að gera okkar besta til að hjálpa honum í þessu ferli.
„Við erum að sjá bætingar en þær eru að koma hægar en við höfðum vonast."
20.02.2026 14:56
Styttist í Mount en aðeins lengra í De Ligt
Athugasemdir



