,,Ég er gríðarlega sáttur, fyrri hálfleikurinn hjá okkur var ekki upp á marga fiska. Þó við höfum haldið boltanum svolítið vorum við ekki að skapa okkur nógu mikið og lentum 1-0 undir. Að koma til baka á móti Þrótti er bara frábært," sagði Óskar Pétursson markvörður Grindavíkur eftir 2-1 sigur á Þrótti í kvöld.
,,Það er dýrt þegar menn nýta ekki færin og við virtumst ekki ætla að gera það í dag og lentum 1-0 undir. Það er gríðarlega sterkt hjá okkur og sýnir karakter að koma til baka og ná að klára þetta."
Þó Þróttur hafi misst mann af velli á 58. mínútu þegar Aron Ýmir Pétursson sá rauða spjaldið leit ekki út fyrir það og Grindavík bakkaði aftur.
,,Það var ekki planað, við gerðum svipað á móti Völsungi í síðustu umferð þegar þeir misstu mann útaf. Við fórum að slaka á. Þeir voru hættulegir fram á við og voru alltaf ógnandi svo við gátum ekki tekið mikið af sénsum. Eins og staðan er í dag í deildinni þurfum við sárlega á þessum þremur stigum að halda og fórnuðum fallegum fótbolta fyrir þrjú stig í dag."
Nánar er rætt við Óskar í sjónvarpinu að ofan.






















