Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 21. ágúst 2025 18:13
Ívan Guðjón Baldursson
Guéhi byrjar gegn Fredrikstad
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Eins og greint hefur verið frá er Eberechi Eze ekki í leikmannahópi Crystal Palace sem tekur á móti Fredrikstad í forkeppni fyrir deildakeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Eze er ekki með því hann er á leið til Arsenal á næstu dögum fyrir 67,5 milljónir punda.

Marc Guéhi fyrirliði Palace er þó í byrjunarliðinu þrátt fyrir háværa orðróma um félagaskipti til Liverpool.

Guéhi, sem á aðeins eitt ár eftir af samningi, er talinn vera falur fyrir um 40 til 50 milljónir punda.

Oliver Glasner þjálfari gerir þrjár breytingar á byrjunarliði Palace sem gerði markalaust jafntefli við Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.

Jefferson Lerma, Borna Sosa og Justin Devenny koma inn í byrjunarliðið. Chris Richards og Tyrick Mitchell setjast á bekkinn.

Crystal Palace: Henderson, Lerma, Lacroix, Guehi, Munoz, Sosa, Wharton, Hughes, Devenny, Sarr, Mateta
Varamenn: Benitez, Cardines, Clyne, Edouard, Esse, Matthews, Mitchell, Rak-Sakyi, Richards

   21.08.2025 17:13
Eze ekki með í kvöld

Slapp
Athugasemdir
banner
banner