Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro mun yfirgefa Manchester United í sumar er samningur hans hjá félaginu rennur út.
Hann hefur leikið með United í að verða fjögur ár en hann er að eiga frábært tímabil núna.
Hann hefur leikið með United í að verða fjögur ár en hann er að eiga frábært tímabil núna.
Telegraph segir frá því að næsta skref Casemiro verði mögulega í Bandaríkjunum þar sem félög í MLS-deildinni ætli að reyna að fá hann.
Casemiro, sem er 34 ára í dag, er heillaður af lífsstílnum í Bandaríkjunum en hann var nýverið í Miami í fríi.
Michael Carrick, sem stýrir Man Utd til bráðabirgða, sagði nýverið að Casemiro gæti enn spilað á hæsta stigi fótboltans.
Athugasemdir




