Maignan orðaður við Chelsea á ný - West Ham lítur í kringum sig eftir nýjum stjóra - Ensk stórlið vilja Bremer
   þri 23. september 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England í dag - Opnar Isak markareikninginn í kvöld?
Alexander Isak fær líklega tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld
Alexander Isak fær líklega tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld
Mynd: EPA
Átta leikir í þriðju umferð enska deildabikarsins fara fram í kvöld. Swansea, Brentford, Grimsby og Crystal Palace eru þegar búin að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum.

Liverpool hefur leik í keppninni í ár þegar liðið fær Southampton í heimsókn Liverpool er á toppnum í úrvalsdeildinni en Southampton er í 19. sæti í Championship deildinni.

Chelsea heimsækir Lincoln sem er í þriðju efstu deild. Burnley fær Cardiff, sem er einnig í þriðju efstu deild, í heimsokn og Fulham fær Cambridge, sem er í fjórðu deild, í heimsókn.

Það er einn úrvalsdeildarslagur þar sem Wolves og Everton eigast við.

þriðjudagur 23. september

ENGLAND: League Cup
18:45 Barnsley - Brighton
18:45 Burnley - Cardiff City
18:45 Fulham - Cambridge United
18:45 Lincoln City - Chelsea
18:45 Wigan - Wycombe
18:45 Wolves - Everton
18:45 Wrexham - Reading
19:00 Liverpool - Southampton
Athugasemdir
banner
banner