Real Madrid er að skoða þjálfaramarkaðinn fyrir sumarið. Jurgen Klopp er sagður efstur á lista og þá er Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, einnig á meðal þeirra sem koma til greina í starfið.
Alvaro Arbeloa tók við Real Madrid eftir að Xabi Alonso var rekinn fyrr á tímabilinu.
Ekki var gefið út hversu lengi Arbeloa myndi stýra liðinu en samkvæmt heimildum ESPN hefur aldrei verið litið á ráðninguna á honum sem langtímalausn innan félagsins.
Það er sagt að hann þurfi líklega að vinna Meistaradeildina til að halda starfinu lengur.
Arbeloa stýrir einmitt Madrídarstórveldinu gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Athugasemdir



