Það var þungt andrúmsloftið hjá Víkingum eftir 1-2 tap gegn Haukum í dag. Ólafur Þórðarson var fljótur að láta sig hverfa af Haukasvæðinu og misstu þeir tveir blaðamenn sem ætluðu að ná tali á honum eftir leik. Ingvar Kale markvörður Víkings var einn af fáum Víkingum eftir inn í búningsklefa Víkings og var því tekinn í viðtal.
,,Við erum svekktir núna, en það er nóg eftir af mótinu. Það eru tólf stig eftir í pottinum. Þetta er ekkert búið en þetta var rosalega vont skref að ná ekki að hanga á jafnteflinu í dag. Haukarnir voru hinsvegar betri en við í dag það verður bara að segjast eins og er. Þeir sköpuðu meira en við. Við sköpuðum ekki nægilega mikið í leiknum svo ég myndi segja að þetta séu sanngjörn úrslit miðað við gang leiksins," sagði Ingvar Kale markvörður Víkings, sársvekktur eftir leikinn sem er sammála því að Víkingsliðið hafi gefið eftir, eftir að hafa komist yfir í leiknum.
,,Við komust yfir í leiknum en náum ekki að komast í 2-0 og við fáum víti í bakið og mark. Okkur hefur vantað þetta í sumar, að slátra leikjunum og okkur var refsað fyrir það í dag," sagði markvörðurinn sem varði vítaspyrnu í leiknum en Andri Steinn Birgisson fylgdi eftir spyrnunni og jafnaði metin fyrir Hauka.
Viðtalið í heild sinni er í sjónvarpinu hér að ofan.




















