Eze og Olise gætu sameinast á ný - Veglegur launapakki Wirtz - De Bruyne á leið til Napoli
banner
   sun 25. maí 2025 20:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Juve í Meistaradeildina og Fiorentina í Sambandsdeildina - Venezia fallið
Mynd: EPA
Fiorentina spilar í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð eftir sigur á Udinese í lokaumferðinni á Ítalíu í kvöld.

Fiorentina var marki undir í hálfleik en einnig manni fleiri eftir að Jaka Bijol, varnarmaður Udinese fékk að líta rauða spjaldið í fyrri hálfleik.

Fiorentina náði að snúa blaðinu við en Christian Kabassele jafnaði metin fyrir Udinese. Það var síðan Moise Kean sem tryggði Fiorentina sigurinn. Albert Guðmundsson kom inn á 71. mínútu.

Lazio missti af Evrópusæti eftir tap gegn Lecce. Þórir Jóhann Helgason spilaði rúman hálftíma en Lecce tryggði sér áframhaldandi veru í deildinni með þessum sigri.

Mikael Egill Ellertsson spilaði 89 mínútur þegar Venezia tapaði 3-2 gegn Juventus. Þessi úrslit þýða að Juventus tryggði sér sæti í Meistaradeildinni en Venezia er fallið. Mikael mun hins vegar ganga til liðs við Genoa í sumar en Bjarki Steinn Bjarkason er leikmaður Venezia en hann var ekki í hóp í kvöld.

Roma lagði Torino en liðið mun spila í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Liðið þurfti að treysta á tap Juventus til að komast í Meistaradeildina. Þá er Empoli fallið ásamt Venezia og Monza eftir tap gegn Verona.

Atalanta 2 - 3 Parma
1-0 Daniel Maldini ('32 )
2-0 Daniel Maldini ('33 )
2-1 Antoine Hainaut ('49 )
2-2 Jacob Ondrejka ('71 )
2-3 Jacob Ondrejka ('90 )

Empoli 1 - 2 Verona
0-1 Suat Serdar ('4 )
1-1 Jacopo Fazzini ('43 )
1-2 Domagoj Bradaric ('69 )

Lazio 0 - 1 Lecce
0-1 Lassana Coulibaly ('43 )
Rautt spjald: ,Santiago Pierotti, Lecce ('45)Alessio Romagnoli, Lazio ('90)

Torino 0 - 2 Roma
0-1 Leandro Paredes ('18 , víti)
0-2 Alexis Saelemaekers ('53 )

Udinese 2 - 3 Fiorentina
1-0 Lorenzo Lucca ('26 )
1-1 Nicolo Fagioli ('46 )
1-2 Pietro Comuzzo ('57 )
2-2 Christian Kabasele ('61 )
2-3 Moise Kean ('82 )
Rautt spjald: Jaka Bijol, Udinese ('39)

Venezia 2 - 3 Juventus
1-0 Daniel Fila ('2 )
1-1 Kenan Yildiz ('25 )
1-2 Randal Kolo Muani ('31 )
2-2 Ridgeciano Haps ('55 )
2-3 Manuel Locatelli ('73 , víti)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 38 24 10 4 59 27 +32 82
2 Inter 38 24 9 5 79 35 +44 81
3 Atalanta 38 22 8 8 78 37 +41 74
4 Juventus 38 18 16 4 58 35 +23 70
5 Roma 38 20 9 9 56 35 +21 69
6 Fiorentina 38 19 8 11 60 41 +19 65
7 Lazio 38 18 11 9 61 49 +12 65
8 Milan 38 18 9 11 61 43 +18 63
9 Bologna 38 16 14 8 57 47 +10 62
10 Como 38 13 10 15 49 52 -3 49
11 Torino 38 10 14 14 39 45 -6 44
12 Udinese 38 12 8 18 41 56 -15 44
13 Genoa 38 10 13 15 37 49 -12 43
14 Verona 38 10 7 21 34 66 -32 37
15 Parma 38 7 15 16 44 58 -14 36
16 Cagliari 38 9 9 20 40 56 -16 36
17 Lecce 38 8 10 20 27 58 -31 34
18 Empoli 38 6 13 19 33 59 -26 31
19 Venezia 38 5 14 19 32 56 -24 29
20 Monza 38 3 9 26 28 69 -41 18
Athugasemdir
banner
banner