Man Utd vill Kane - Arsenal hefur áhuga á Yildiz - Villa vill kaupa Sancho
   fim 25. september 2025 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Öruggur sigur hjá Þór/KA og falldraugurinn eltir Tindastól
Kvenaboltinn
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir innsiglaði sigur Þórs/KA
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir innsiglaði sigur Þórs/KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA 3 - 0 Tindastóll
1-0 Ellie Rose Moreno ('5 )
2-0 Sonja Björg Sigurðardóttir ('43 )
3-0 Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('69 )
Lestu um leikinn

Þór/KA tryggði sér áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna í kvöld með sigri á Tindastóli sem er þarf að treysta á önnur úrslit til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni.

Þór/KA komst yfir snemma leiks þegar Ellie Rose Moreno slapp í gegn eftir langa sendingu fram völlinn frá Jessicu Grace Berlin.

Tindastóll vann sig inn í leikinn en náði ekki að koma boltanum í netið. Undir lok fyrri hálfleiks bjargaði María Dögg Jóhannesdóttir á línu eftir skalla að marki Tindastóls.

Strax í kjölfarið skoraði Sonja Björg Sigurðardóttir annað mark Þórs/KA.

Staðan 2-0 í hálfleik en Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir innsiglaði sigur Þórs/KA þegar hún fékk nægt pláss inn á teignum og skallaði boltann í netið.

Þór/KA er því búið að tryggja sér áframhaldandi veru í deildinni en Tindastóll fellur endanlega ef Fram vinnur FHL á laugardaginn.
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þór/KA 19 8 0 11 34 - 41 -7 24
2.    Fram 18 7 0 11 24 - 43 -19 21
3.    Tindastóll 19 5 2 12 22 - 47 -25 17
4.    FHL 18 1 1 16 11 - 56 -45 4
Athugasemdir