„Það er auðvitað enginn sáttur eftir tapleik, og strákarnir voru eðlilega hundfúlir í klefanum eftir leik, en ég er samt ánægður með vinnusemina og margt fleira. Strákarnir lögðu sig auðvitað alla fram eins og menn gera alltaf með íslenska landsliðinu og þeir voru virkilega að reyna að spila sín á milli," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, í viðtali sem birtist á heimasíðu KSÍ eftir 4-0 tap gegn Mexíkó í nótt.
Íslenska liðið byrjaði leikinn vel en Mexíkó skoraði svo tvö mörk með stuttu millibili um miðbik fyrri hálfleiks og staðan var 2-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik bættu svo heimamenn við tveimur mörkum.
Íslenska liðið byrjaði leikinn vel en Mexíkó skoraði svo tvö mörk með stuttu millibili um miðbik fyrri hálfleiks og staðan var 2-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik bættu svo heimamenn við tveimur mörkum.
Lestu um leikinn: Mexíkó 4 - 0 Ísland
„Ég sé engan tilgang með því að fara í svona leik, pakka í vörn og reyna ekki að spila fram á við, því þá læra menn svo lítið, og þessir leikir, svona leikir, eru til þess að læra af þeim. Við vorum að spila við mjög sterkan andstæðing og ég vil miklu frekar að menn mæti bara óhræddir og spili boltanum. Auðvitað þarf stundum að spila langt, en það er líka partur af leiknum, menn verða að finna jafnvægið í hverjum leik milli varnar og sóknar."
Leikurinn var utan landsleikjaglugga og því var hópurinn mestmegnis skipaður leikmönnum sem spila á Íslandi. Spilað var í Queretaro sem er hátt yfir sjávarmáli.
„Þetta voru svolítið krefjandi aðstæður, þunnt loft og mikill raki sem hafði áhrif á leikinn, en það er óhætt að segja að við höfum tapað fyrir sterkara liði," sagði Arnar.
Næstu leikir landsliðsins verða í lok mars, vináttuleikir gegn Kanada og Haítí.
Athugasemdir



