Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 20:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Róbert Frosti kom við sögu í bikarsigri GAIS
Mynd: GAIS
Róbert Frosti Þorkelsson kom við sögu þegar GAIS vann öruggan sigur á Landskrona í fyrstu umferð sænska bikarsins í kvöld.

GAIS var með 3-0 forystu í hálfleik en Róbert Frosti kom inn á þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Staðan hélst óbreytt og 3-0 sigur var því niðurstaðan.

GAIS heimsækir Sandviken þann 2. mars í næstu umferð.

Daníel Leó Grétarsson spilaði klukkutíma þegar Sönderjyske gerði markalaust jafntefli gegn Bröndby í dönsku deildinni. Sönderjyske er í 4. sæti með 33 stig eftir 21 umferð. Liðið er með jafn mörg stig og Bröndby sem er í 3. sæti.

Bæði lið eru örugg með sæti í efri hlutanum en það er aðeins ein umferð eftir fyrir tvískiptingu.
Athugasemdir
banner