Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 16:30
Kári Snorrason
Hákon stefnir á að spila einn daginn á Englandi - „Maður veit aldrei í þessu“
Eimskip
Hákon í leik gegn Aston Villa í Evrópudeildinni.
Hákon í leik gegn Aston Villa í Evrópudeildinni.
Mynd: EPA
Á æfingu í Kanada.
Á æfingu í Kanada.
Mynd: KSÍ
Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er einn af lykilmönnum Lille í Frakklandi. Á tímabilinu hefur hann spilað 39 leiki með liðinu í öllum keppnum og skorað í þeim sjö mörk, ásamt því að leggja fimm upp til viðbótar.

Hákon er nú staddur í Toronto í Kanada með landsliðinu sem mætir bæði Kanada og Haítí í æfingaleikjum. Þar spjallaði hann við Fótbolta.net um franska liðið.

„Við erum á fínni siglingu núna. Það var mjög mikið bras á okkur í byrjun tímabils. Ég held að við töpuðum fimm leikjum í röð í upphafi tímabils.

Það var í fyrsta sinn sem ég lendi í því á mínum ferli. Þetta var mjög erfitt en erum búnir að rífa okkur í gang núna. Unnum tvo toppslagi sem kom okkur aftur í Meistaradeildarbaráttuna.“


Hákon skrifaði í upphafi árs undir nýjan samning við Lille sem gildir til sumarsins 2030. Fyrri samningur rann út sumarið 2028.

„Ég er mjög ánægður í Lille. Það er allt til alls þarna. Geggjaður klúbbur og mjög faglegur. Klúbburinn lítur upp á við; Vill spila í Meistaradeildinni og gera vel í deild og bikar. Það kom ekkert annað til greina fyrir mig en að skrifa undir.“

Skýrt markmið
Sérðu fyrir þér að vera í Frakklandi næstu árin?
„Maður veit aldrei í þessu, maður vill alltaf að fara hærra. Markmiðið mitt er alltaf að spila í ensku úrvalsdeildinni. Ef það gerist eftir eitt ár, í sumar eða eftir fimm ár verður það bara þannig. Eins og er þá er ég mjög glaður í Frakklandi.“

Þú ætlar þér því að ná því markmiði einn daginn?
„Já, allaveganna einn daginn. Maður nær þeim (markmiðunum) ekki alltaf en vonandi. Ég held áfram að leggja á mig, það er markmiðið.“
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
Slapp
Athugasemdir
banner
banner