Guðmann Þórisson, varnarmaður FH, átti frábæran leik í dag þegar liðið vann 1-0 sigur á Þór í Pepsi-deildinni. FH-ingar halda í toppsætið.
Lestu um leikinn: FH 1 - 0 Þór
„Þetta var gríðarlega erfiður leikur en ég hefði viljað skora fleiri mörk til að þurfa ekki að vera undir pressu í lokin. En við erum ánægðir með sigurinn," sagði Guðmann eftir leikinn.
Það leit út sem FH hafi gert það sem þurfti í þessum leik en ekki mikið meira en það. Var liðið að setja eins lítið púður og hægt var í leikinn vegna leikjaálags?
„Nei nei. Það hugsar það enginn en ósjálfrátt gæti það gerst. Fyrir leikinn var okkur sagt að spara okkur ekki neitt. Flestir í liðinu gerði nóg til að vinna."
„Við áttum ekki okkar besta leik en unnum í dag. Ég er ánægður með þetta. Fyrir utan þennan leik hefur FH verið að stíga gríðarlega upp. Þetta var ekki nægilega góður leikur í dag en við unnum hann"
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.























