Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 09:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kári Sigfússon spáir í 9. umferð Bestu deildarinnar
Kári Sigfússon skoraði þrennu í stórsigri Keflavíkur á föstudag.
Kári Sigfússon skoraði þrennu í stórsigri Keflavíkur á föstudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Scott McTominay frammistaða.
Scott McTominay frammistaða.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Okkar næsti atvinnumaður.
Okkar næsti atvinnumaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Níunda umferð Bestu deildarinnar fer fram í dag, allir sex leikirnir spilaðir sama daginn!

Veislan hefst klukkan 14:00 með toppslag á Ísafirði og lýkur með leik Stjörnunnar og KR í Garðabænum. Sá leikur hefst klukkan 19:15. Fjórir leikir hefast 16:15.

Kári Sigfússon, leikmaður Keflavíkur, spáir í leiki umferðarinnar, Keflvíkingar eru á toppi Lengjudeildarinnar sem stendur.

Hann fylgir á eftir Aroni Guðmundssyni sem var með fjóra leiki rétta þegar hann spáði í síðustu umferð.

Svona spáir Kári leikjunum:

Vestri 1 - 2 Víkingur, 14:00
Vestri búnir að vera geðveikir, Guzcut er að spila eins og Scott McTominay. Þvílíkur leikmaður sem hann er, hefði verið gott að fá hann til KR að líma saman varnar- og sóknarleik liðsins. Guz opnar leikinn með marki eftir klafs í leiknum. Gylfi Sig verður hins vegar í stuði og skilar tveimur G/A.

ÍBV 0 - 1 FH, 16:15
“Slakurbarber slagurinn” er þessi viðureign kölluð. Hann er mikill FH-ingur og svo á hann taugar að rekja til Vestmannaeyja eftir frábærar frammistöður á þjóðhátíð. FH skorar snemma, Úlfur Ágúst skorar úr víti sem Kjartan Kári mun fiska. Í þessum leik fáum við rautt spjald. Draumaúrslit fyrir Studio220 og félaga í HFJ.

Afturelding 2 - 2 Valur, 16:15
Þetta verður fínasti leikur, Orri Hrafn Kjartans bossar miðjuna eins og hann gerir best. Afturelding kemst í 2-0 en Valur koma með til baka. Orri Hrafn og AP skora í þessum leik, grazie mile.

Breiðablik 4 - 0 ÍA, 16:15
Walk in the park í Kópavoginum, einstefna að marki ÍA. Einfaldlega spurning um hversu stór þessi sigur verður hjá Breiðabliki. Ásgeir Helgi vinur minn skorar í þessum leik, jafnvel leggur upp líka ef hann eyðir ekki of mikilli orku í að rífa kjaft. Arnór Gauti Jónsson, okkar næsti atvinnumaður setur í lás á miðjunni.

Fram 2 - 1 KA, 16:15
Ég mun því miður ekki líta við þessum stórleik. Þetta verður þægilegur sigur hjá Rúnari Kristins og lærisveinum hans. KA kaldir, ískaldir, en ná þó að pota inn einu sárabótamarki til þess að gera bílferðina heim bærilega.

Stjarnan 1 - 2 KR, 19:15
Hér þurfti ég að ræsa út spámanninn í Eyþóri Wöhler. Við vorum sammála um það að hér verður fótboltinn að sigra. KR prófar að loka vörninni og skora tvö mörk í stað fjögurra. Hins vegar fá þeir bara eitt mark á sig í stað þriggja. Dóri keeper setur í lás aftast. Eiður og Aron Sig með mörkin. Maður leiksins verður 12. maðurinn upp í stúku, Birgir Styrmis. KR aftur á sigurbraut og það verður mikið hlegið á Spírunni næsta fös.

Fyrri spámenn:
Eggert Aron (5 réttir)
Aron Guðmunds (4 réttir)
Atli Barkar (4 réttir)
Maggi Matt (4 réttir)
Eyþór Aron Wöhler (3 réttir)
Þór Llorens (3 réttir)
Halldór Smári (2 réttir)
Fanndís Friðriks (2 réttir)

Hér fyrir neðan má sjá hvernig staðan er í Bestu deildinni þessa stundina.
Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 6 2 1 18 - 8 +10 20
2.    Vestri 9 5 1 3 11 - 5 +6 16
3.    Breiðablik 9 5 1 3 14 - 15 -1 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 9 4 1 4 16 - 17 -1 13
6.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
7.    ÍBV 9 3 2 4 9 - 15 -6 11
8.    KA 9 3 2 4 9 - 16 -7 11
9.    KR 9 2 4 3 26 - 22 +4 10
10.    FH 9 3 1 5 15 - 14 +1 10
11.    Afturelding 9 3 1 5 8 - 13 -5 10
12.    ÍA 9 3 0 6 12 - 21 -9 9
Athugasemdir
banner