Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Borga rúmlega 20 milljónir fyrir kantmann Southampton
Sulemana er hér í baráttu við Enzo Fernández miðjumann Chelsea í leik í ensku úrvalsdeildinni.
Sulemana er hér í baráttu við Enzo Fernández miðjumann Chelsea í leik í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskipti Kamaldeen Sulemana til Atalanta.

Atalanta er að kaupa kantmanninn úr röðum Southampton fyrir rúmlega 20 milljónir evra. Southampton heldur auk þess 15% af endursöluvirði leikmannsins.

Hinn 23 ára gamli Sulemana kom að 5 mörkum í 30 leikjum með Southampton á síðustu leiktíð. Hann gerir fjögurra ára samning við Atalanta, með möguleika á einu auka ári.

Sulemana er landsliðsmaður Gana en hann braust fram í sviðsljósið með Nordsjælland í danska boltanum. Hann stoppaði hjá Rennes í Frakklandi áður en Southampton keypti hann og nú heldur hann í ítalska boltann.

Sulemana er annar leikmaðurinn sem Atalanta kaupir í sumar, eftir að hafa keypt Odilon Kossounou frá Bayer Leverkusen.

Atalanta er búið að selja Roberto Piccoli, Michel Adopo og Juan Musso í sumar á meðan Rui Patrício fór til Al-Ain á frjálsri sölu.
Athugasemdir