Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 20:06
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Þór skoraði fimm í Grafarvogi
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir 0 - 5 Þór
0-1 Ibrahima Balde ('6)
0-2 Ibrahima Balde ('42)
0-3 Hermann Helgi Rúnarsson '66
0-4 Ibrahima Balde ('78)
0-5 Aron Ingi Magnússon '84
Rautt spjald: Snorri Þór Stefánsson, Fjölnir ('62)

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  5 Þór

Fjölnir tók á móti Þór í fyrsta leik kvöldsins í Lengjudeild karla og léku Akureyringar á alls oddi þar sem Ibrahima Balde var áberandi besti leikmaður vallarins.

Þórsarar höfðu fengið góð tækifæri til að skora á upphafsmínútunum þegar Ibrahima kom boltanum í netið á sjöttu mínútu eftir vandræðagang í varnarleik Fjölnis, þar sem heimamönnum mistókst að hreinsa hornspyrnu frá marki.

Þórsarar voru talsvert sterkari aðilinn og sköpuðu sér góð færi en tókst ekki að tvöfalda forystuna fyrr en á 42. mínútu. Þar var Ibrahima aftur á ferðinni og skoraði hann eftir slæm varnarmistök Þengils Orrasonar.

Þórsarar leiddu því með tveimur mörkum í leikhlé þó forystan hefði getað verið stærri. Fjölnismenn mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleikinn og byrjuðu að ógna marki Akureyringa en tókst ekki að skapa gott færi. Þess í stað fékk Snorri Þór Stefánsson markvörður að líta beint rautt spjald fyrir klaufalegt brot á Ibrahima eftir langa sendingu upp völlinn.

Varnarlína Fjölnis misreiknaði flugið á boltanum svo Ibrahima náði fyrstur til hans. Snorri braut í kjölfarið á honum rétt utan vítateigs og uppskar beint rautt spjald sem aftasti varnarmaður. Sigurjón Daði Harðarson kom inn af bekknum og fékk strax mark á sig úr aukaspyrnunni. Hann varði spyrnuna út í teiginn þar sem Hermann Helgi Rúnarsson fylgdi eftir með marki af stuttu færi.

Tíu Fjölnismenn réðu engan veginn við Þórsara á lokakaflanum. Ibrahima Balde fullkomnaði þrennuna sína áður en hann lagði fimmta og síðasta mark leiksins upp fyrir Aron Inga Magnússon.

Ibrahima komst nálægt því að skora fernu þegar hann slapp einn í gegn á lokamínútunum en skoraði ekki. Lokatölur 0-5 fyrir Þór sem er í þriðja sæti deildarinnar, með 17 stig eftir 10 umferðir.

Fjölnir er í botnbaráttunni með 6 stig.
Athugasemdir
banner
banner