16-liða úrslitin í HM félagsliða fara af stað í dag þegar brasiísku stórveldin Palmeiras og Botafogo kljást.
Þau hafa mæst fimm sinnum á síðasta ári og sigraði Botafogo þrjá leiki en hinum tveimur lauk með jafntefli.
Botafogo gerði frábæra hluti í riðlakeppni HM þar sem liðið sigraði óvænt gegn Frakklands- og Evrópumeisturum Paris Saint-Germain til að komast upp úr riðlinum.
Í kvöld eigast svo Benfica og Chelsea við í evrópskum slag en þessi tvö lið hafa ekki mæst innbyrðis síðan 2013. Þau hafa spilað þrjá leiki sín á milli og hefur Chelsea alltaf haft betur með eins marks mun.
Benfica vann C-riðil riðlakeppninnar þökk sé óvæntum sigri gegn FC Bayern, þrátt fyrir að hafa gert 2-2 jafntefli við Boca Juniors sem féll úr leik.
Chelsea endaði hins vegar í öðru sæti síns riðils eftir óvænt tap gegn Flamengo.
Leikir dagsins
16:00 Palmeiras - Botafogo
20:00 Benfica - Chelsea
Athugasemdir