Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 09:20
Ívan Guðjón Baldursson
Höfnuðu 15 milljónum frá Fulham
Mynd: EPA
Tyrkneska félagið Göztepe hefur hafnað 15 milljón punda tilboði frá Fulham í brasilíska framherjann Rômulo.

Rômulo er 23 ára gamall og kom með beinum hætti að 27 mörkum í 33 leikjum á síðustu leiktíð.

Rômulo á þrjú ár eftir af samningi sínum við Göztepe en hann gekk til liðs við félagið fyrir einu og hálfu ári síðan frá Athletico Paranaense í heimalandinu.

Romulo er ofarlega á forgangslista Fulham á leikmannamarkaðinum í sumar þar sem félagið vill skapa meiri samkeppni fyrir Rodrigo Muniz í fremstu víglínu.

Raúl Jiménez er með eitt ár eftir af samningi sínum við Fulham og mun Carlos Vinícius yfirgefa félagið á frjálsri sölu um mánaðamótin.
Athugasemdir