Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Staðfestir að Barca ætlar að virkja riftunarákvæðið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Joan Laporta forseti spænska stórveldisins Barcelona hefur staðfest að félagið ætli að greiða upp riftunarákvæðið í samningi Nico Williams hjá Athletic Bilbao.

Williams er langefstur á óskalistanum hjá Spánarmeisturum Barca í sumar en hann kostar 58 milljónir evra. Hann er með riftunarákvæði í samningi sínum við Athletic og reyndu Börsungar að semja um greiðsludreifingu á kaupunum, en Baskarnir tóku það ekki í mál.

Börsungum hefur verið gert ljóst að þeir þurfa að greiða alla upphæðina í einu og hefur söfnun því verið hrint af stað innan félagsins.

„Barcelona er tilbúið til að gera það sem þarf til að kaupa Nico Williams," svaraði Laporta þegar hann var spurður út í riftunarákvæðið. Hann staðfesti þannig að Barca sé staðráðið í því að kaupa þennan eftirsótta kantmann sem er einnig orðaður við Arsenal og FC Bayern í sumar. Williams vill fara til Barcelona.

Laporta var einnig spurður út í hollenska miðjumanninn Frenkie de Jong sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

„Hann er lykilmaður fyrir okkur og samningaviðræður eru að þokast í rétta átt. Ég vona að hann verði áfram hjá okkur næstu árin, ég veit að hann vill búa áfram í Barcelona. Ég sé því ekkert til fyrirstöðu að hann geri nýjan samning."
Athugasemdir
banner