Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ashley Barnes tekur slaginn með Burnley
Mynd: EPA
Framherjinn þaulreyndi Ashley Barnes er búinn að gera eins árs samning við Burnley og mun því spila aftur með félaginu í ensku úrvalsdeildinni.

Barnes, sem verður 36 ára í október, lék fyrir Burnley frá 2014 til 2023 og skipti þá yfir til Norwich City.

Hann kom svo aftur til Burnley í síðasta vetrarglugga og kom við sögu í 16 leikjum á seinni hluta tímabils, en skoraði aðeins eitt mark.

Hann hjálpaði Burnley að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á ný og er verðlaunað með eins árs samningi þrátt fyrir hækkandi aldur.

Barnes hefur spilað 200 úrvalsdeildarleiki með Burnley og skorað í þeim 42 mörk. Hann getur því miðlað mikilvægri reynslu áfram til leikmannahópsins.


Athugasemdir
banner