Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nýjung í úrvalsdeildinni - Viðtöl við þá sem fara af velli
Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leikmenn sem fara af velli í ensku úrvalsdeildinni geta átt von á því að fara í viðtöl eftir skiptingarnar. Þetta kemur fram á Telegraph í dag.

Sky Sports og TNT Sports munu ræða við leikmenn á bekknum eftir að þeir hafa verið teknir af velli.

Það verður einnig myndað inn í búningsklefum liðanna á komandi tímabili.

Sky Sports verður með 215 leiki í beinni á komandi tímabili, eftir að hafa verið með 128 leiki á síðasta tímabli. TNT verður með 52 leiki í beinni.

Hér á Íslandi er SÝN rétthafinn á enska boltanum. Tímabilið hefst 15. ágúst.
Athugasemdir
banner