
Ísland vann kærkominn sigur er liðið mætti Serbíu í síðasta leik sínum fyrir Evrópumótið í dag. Leikið var ytra.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net úr leiknum.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net úr leiknum.
Lestu um leikinn: Serbía 1 - 3 Ísland
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - 6
Hafði ekki mikið að gera í þessum leik en lét vel í sér heyra. Mér fannst hún eiga að gera betur í markinu sem Serbía skorar.
Guðný Árnadóttir - 6
Spilaði fyrri hálfleikinn og var fín varnarlega en svo sem lítið að frétta sóknarlega.
Glódís Perla Viggósdóttir - 6
Fyrirliðinn hefur oft átt betri leiki í hjarta varnarinnar. Fín í fyrri hálfleiknum, en set spurningamerki við hana í markinu sem Serbía skorar.
Ingibjörg Sigurðardóttir - 7
Var best í varnarlínu Íslands í þessum leik, var sérstaklega góð í fyrri hálfleiknum.
Guðrún Arnardóttir - 5
Leit ekki vel út í markinu sem Serbía skorar og var í smá basli. Henni líður ekki best í bakverðinum þó hún hafi spilað þar mikið að undanförnu.
Hildur Antonsdóttir - 6
Skilaði sínu ágætlega inn á miðsvæðinu í dag. Var ekkert rosalega mikið í boltanum en fékk eitt færi í fyrri hálfleik þar sem hún hefði alveg mátt gera betur.
Alexandra Jóhannsdóttir - 7
Gerði frábærlega í fyrsta markinu og setti smá tóninn með því. Var mjög góð í byrjun leiksins.
Sveindís Jane Jónsdóttir - 8
Sýndi alvöru gæði þegar hún skoraði stórkostlegt mark og átti líka góða stoðsendingu í fyrri hálfleik. Var óheppin að gera ekki fleiri mörk. Var svolítið að pirra sig á hlutnum á köflum.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - 7
Skoraði flott mark og skilaði sínu ágætlega. Þurfum að koma henni enn meira í boltann í góðum stöðum.
Sandra María Jessen - 7
Skoraði gott mark í byrjun leiksins þar sem hún átti gott hlaup. Góð afgreiðsla. Átti í raun að skora annað mark en hitti boltann ekki nægilega vel.
Hlín Eiríksdóttir - 5
Hefur ekki alveg verið að finna sig í síðustu landsleikjum. Það var einu sinni í fyrri hálfleik þar sem hún fékk mikið svæði en fór með boltann út af. Þarf að sýna meira til að halda sæti sínu í liðinu.
Varamenn:
Agla María Albertsdóttir - 6
Sædís Rún Heiðarsdóttir - 6
Diljá Ýr Zomers - 6
Dagný Brynjarsdóttir - 6
Berglind Rós Ágústsdóttir - 6
Amanda Andradóttir - 6
Leikir Íslands á EM 2025:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir