Fabrizio Romano segir að félagaskipti Matteo Ruggeri til Atlético Madrid séu svo gott sem frágengin.
Spænska félagið er að kaupa þennan vinstri vængbakvörð úr röðum Atalanta fyrir um 20 milljónir evra.
Ruggeri er 22 ára gamall og kom við sögu í 38 leikjum með Atalanta á síðustu leiktíð. Hann var lykilmaður upp yngri landslið Ítalíu en hefur aldrei fengið tækifæri með A-landsliðinu.
Ruggeri er uppalinn hjá Atalanta og hefur spilað 109 leiki fyrir félagið. Hann mun berjast við Javi Galán um sæti í byrjunarliðinu hjá Atlético þar sem Reinildo Mandava er að renna út á samningi.
Atlético Madrid er í stórsókn í sumar þar sem liðið er að festa kaup á ýmsum leikmönnum. Auk Ruggeri eru Álex Baena og Johnny Cardoso á leiðinni til félagsins.
Atlético er dottið úr leik á HM félagsliða þrátt fyrir að enda riðlakeppnina með 6 stig úr 3 leikjum. Liðið endaði í þriðja sæti La Liga á síðustu leiktíð, með 76 stig úr 38 leikjum.
27.06.2025 18:20
Atlético borgar 50 milljónir fyrir spænskan landsliðsmann
Athugasemdir