Víkingur Ólafsvík tók á móti Gróttu í 9. umferð 2. deildar karla síðasta laugardag.
Grótta komst í 0-2 í leiknum en heimamenn í Ólafsvík svöruðu um miðbik seinni hálfleiks með tveimur mörkum. Ólsarar eru í 7. sæti með 10 stig en Grótta er í 4. sæti með 16 stig.
Það voru þeir Valdimar Daði Sævarsson og Björgvin Brimi Andrésson sem skoruðu mörk Gróttu í leiknum. Þeir Luis Alberto Diez Ocerin og
Kwame Quee skoruðu mörk heimamanna.

Tómas Freyr Kristjánsson var á vellinum og tók meðfylgjandi myndir.
2. deild heldur áfram á morgun, en spilað er á sunnudegi þar sem liðin voru í eldlínunni í Fótbolti.net bikarnum í miðri viku.
Athugasemdir