
„Það vantaði bara aðeins upp á," sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari HK eftir 2-2 jafntefli við Þróttara í kvöld.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 2 HK
„Við verðum að skoða þetta bara, það vantaði aðeins upp á kraftinn í okkur, og að svona 'go for it' einhvernveginn. Við vorum bara taugaveiklaðir með boltann. Það var ekki bara einn eða tveir, við náum bara ekki alveg að finna taktinn. Vissulega margar góðar frammistöður varnarlega, en sóknarlega með boltann þá vorum við ekki nógu sterkir í dag. Þetta var einn af þessum dögum, en við tökum stigið og höldum bara áfram," sagði Hermann.
HK byrjaði mótið frekar hægt en hafa snúið genginu við. Þeir hafa unnið fjóra af síðustu sex og eru í 3. sæti deildarinnar.
„Þetta er styrkleikamerki, ekki besti leikurinn okkar en það er karakter í liðinu. Við erum að skora ekkert falleg mörk en við höfum trú á því að við getum skorað allskonar mörk. Stundum er fótbolti bara þannig að þú verður að opna töskuna og sjá hvað þú kemur upp með," sagði Hermann.
Arnar Freyr Ólafsson markvörður liðsins meiddist í síðasta leik og var ekki með í dag. Hermann segir að það ætti ekki að vera langt í hann.
„Þetta er nú ekki alvarlegt, hann er búinn að fara í myndatöku og sjá hver rótin af vandanum er. Það er ekkert langt í hann þetta er ekkert alvarlegt," sagði Hermann.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.