Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Branthwaite búinn að samþykkja samning
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn öflugi Jarrad Branthwaite er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir nýjum samningi hjá Everton.

Paul Joyce hjá The Times greinir frá þessu og segir að nýr samningur mun gilda næstu fimm árin, eða til 2030.

Branthwaite er 23 ára gamall miðvörður sem hefur verið orðaður við Manchester United og Liverpool meðal annars.

Branthwaite hefur verið lykilmaður í liði Everton síðustu tvö tímabil og hefur David Moyes þjálfari miklar mætur á honum.
Athugasemdir
banner
banner