Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: KA-menn gáfu Völsurum sigurinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA 2 - 5 Valur
0-1 Adam Ægir Pálsson ('10)
0-2 Ásgeir Sigurgeirsson ('12 , sjálfsmark)
1-2 Bjarni Aðalsteinsson ('45)
1-3 Tómas Bent Magnússon ('70)
1-4 Albin Skoglund ('73)
1-5 Stefán Gísli Stefánsson ('86)
2-5 Hans Viktor Guðmundsson ('91)

Lestu um leikinn: KA 2 -  5 Valur

KA tók á móti Val í fyrri leik kvöldsins af tveimur í Bestu deild karla og úr varð skemmtileg viðureign þar sem Valsarar komust í tveggja marka forystu snemma leiks.

Adam Ægir Pálsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir slæma sendingu Hrannars Björns Steingrímssonar í varnarlínunni. Lúkas Logi Heimisson náði boltanum og renndi honum á Adam Ægi sem skoraði í opið mark.

Tveimur mínútum síðar varð Ásgeir Sigurgeirsson fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir hornspyrnu, skömmu eftir stangarskot frá Lúkasi Loga.

Valur var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og átti þrjú stangarskot en KA tókst þó að minnka muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks, þvert gegn gangi leiksins. Bjarni Aðalsteinsson skoraði þá eftir flotta sókn þar sem Hrannar Björn og Rodrigo sáu um undirbúninginn.

Bæði lið fengu fín færi í síðari hálfleiknum sem var nokkuð jafn þar til KA gaf Völsurum tvö mörk í viðbót á silfurfati, þegar danski markvörðurinn William Tönning gerðist sekur um afar slæm mistök með stuttu millibili.

Hann sló fyrst hornspyrnu frá Adam Ægi í slána, en þaðan barst boltinn til Tómasar Bents Magnússonar sem skoraði af stuttu færi. Þremur mínútum síðar fór hann í skógarferð eftir stungusendingu innfyrir vörnina sem gerði Albin Skoglund kleift að innsigla sigurinn.

Markaveislan var þó ekki búin hér því Stefán Gísli Stefánsson kom inn af bekknum og skoraði nokkrum sekúndum síðar, með sinni fyrstu snertingu, eftir að boltinn barst til hans innan vítateigs.

Hans Viktor Guðmundsson skoraði að lokum skaðabótamark fyrir heimamenn í uppbótartíma. Hann átti skot langt utan af velli og tókst Frederik Schram ekki að halda boltanum svo hann endaði í netinu. Lokatölur 2-5 fyrir Val sem hefur þar með skorað 11 mörk í síðustu tveimur deildarleikjum.

Valur fer upp í annað sæti Bestu deildarinnar með þessum sigri. Þar er liðið með 24 stig eftir 12 umferðir, tveimur stigum á eftir toppliði Víkings R. sem á leik til góða.

KA er í botnbaráttunni, með 12 stig úr 13 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner