Jafnt á Selfossi og í Laugardal

Þremur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Lengjudeild karla, þar sem ÍR rúllaði yfir Grindavík til að endurheimta toppsætið.
ÍR 6 - 1 Grindavík
1-0 Bergvin Fannar Helgason ('11
2-0 Emil Nói Sigurhjartarson ('55)
3-0 Víðir Freyr Ívarsson ('66)
4-0 Bergvin Fannar Helgason ('68)
5-0 Víðir Freyr Ívarsson ('71)
5-1 Adam Árni Róbertsson ('80)
6-1 Bergvin Fannar Helgason ('85 , víti)
Lestu um leikinn: ÍR 6 - 1 Grindavík
ÍR-ingar skoruðu sex mörk gegn Grindavík en staðan var aðeins 1-0 í hálfleik. Bergvin Fannar Helgason skoraði fyrsta mark leiksins eftir hornspyrnu á 11. mínútu og voru heimamenn sterkari aðilinn en tókst ekki að bæta öðru marki við.
Breiðhyltingar skiptu svo um gír í síðari hálfleik þegar þeir hrintu alvöru markaflóði af stað. Emil Nói Sigurhjartarson tvöfaldaði forystuna eftir að ÍR vann boltann hátt uppi á vellinum áður en Víðir Freyr Ívarsson og Bergvin Fannar bættu sitthvoru markinu við.
Víðir Freyr skoraði eftir góðan undirbúning frá Bergvini, sem skoraði svo sjálfur sitt annað mark eftir hornspyrnu og staðan var orðin 4-0. Skömmu eftir það skoraði Víðir eftir aðra hornspyrnu og var hann líka kominn með tvennu eins og Bergvin.
Adam Árni Róbertsson skoraði fánamark fyrir Grindavík á 80. mínútu eftir mistök í varnarlínu ÍR en Breiðhyltingar fengu svo vítaspyrnu fimm mínútum síðar. Bergvin var sparkaður niður innan vítateigs og skoraði hann sjálfur af vítapunktinum til að fullkomna þrennuna sína.
Lokatölur 6-1 fyrir ÍR sem trónir á toppi Lengjudeildarinnar með 22 stig eftir 10 umferðir - tveimur stigum fyrir ofan Njarðvíkinga.
Grindavík situr eftir um miðja deild með 11 stig.
Selfoss 2 - 2 Leiknir R.
1-0 Aron Fannar Birgisson ('21)
2-0 Aron Fannar Birgisson ('52)
2-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('66)
2-2 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('72)
Rautt spjald: Patryk Hryniewicki, Leiknir ('90)
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 2 Leiknir R.
Á sama tíma tók Selfoss á móti Leikni R. í fallbaráttunni og náði forystunni í fyrri hálfleik þegar Aron Fannar Birgisson skoraði eftir atgang í vítateig Leiknismanna. Þetta mark kom skömmu eftir að Aron átti skot í stöng eftir að hafa sloppið einn innfyrir.
Það var lítið að frétta út fyrri hálfleikinn en Aron Fannar tvöfaldaði forystu heimamanna í upphafi síðari hálfleiks. Í þetta sinn skoraði Aron eftir laglega sókn Selfyssinga sem endaði með góðri sendingu frá Frosta Brynjólfssyni fyrir markið, þar sem Aron kláraði af stuttu færi.
Leiknismenn ógnuðu afar lítið en Degi Inga Hammer Gunnarssyni tókst þó að minnka muninn á 66. mínútu. Jóhann Kanfory Tjörvason gerði mjög vel í undirbúningnum þar sem hann sneri varnarmenn Selfoss af sér áður en hann losaði boltann til Dags.
Sex mínútum síðar skoraði Dagur jöfnunarmark Leiknis og aftur átti Jóhann Kanfory stoðsendinguna. Í þetta sinn gaf Jóhann fyrirgjöf í teiginn sem Dagur Ingi skallaði í netið.
Lokamínútur leiksins voru ótrúlega fjörugar þar sem bæði lið reyndu að ná í sigurmark, en tókst ekki. Leiknismenn voru líklegri til að byrja með en í uppbótartímanum tóku Selfyssingar öll völd á vellinum og sköpuðu sér góð færi til að skora, en tókst ekki.
Patryk Hryniewicki fékk rautt spjald fyrir brot sem aftasti varnarmaður og voru Leiknismenn því einungis tíu eftir síðustu mínúturnar. Raul Tanque slapp einn í gegn en lét Ólaf Íshólm Ólafsson verja frá sér og svo reyndi Nacho Gil langskot að marki Leiknismanna þegar Ólafur var ekki í markinu, en varnarmaður skallaði marktilraunina frá. Harley Willard átti einnig marktilraun undir lokin en boltinn rataði ekki í netið svo lokatölur urðu 2-2.
Þróttur R. 2 - 2 HK
1-0 Aron Snær Ingason ('10)
1-1 Eiður Atli Rúnarsson ('15)
1-2 Birnir Breki Burknason ('38)
2-2 Liam Daði Jeffs ('70)
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 2 HK
Að lokum gerðu Þróttur R. og HK 2-2 jafntefli í spennandi slag í Laugardalnum þar sem Aron Snær Ingason tók forystuna fyrir heimamenn eftir tíu mínútna leik. Hann skoraði eftir einfalda sendingu innfyrir sofandi vörn HK.
Gleði heimamanna lifði þó aðeins í fimm mínútur, eða allt þar til Eiður Atli Rúnarsson jafnaði metin með þrumuskoti utan vítateigs. Boltinn barst til Eiðs Atla eftir að Þróttarar skölluðu aukaspyrnu frá marki. Eiður smellhitti boltann og var skot hans óverjandi fyrir Þórhall Ísak Guðmundsson sem stóð á milli stanganna hjá Þrótti.
Bæði lið fengu góð færi í opnum og skemmtilegum slag, en gestirnir úr Kópavogi nýttu færin betur í fyrri hálfleik og fóru inn í leikhléð með forystu. Birnir Breki Burknason tók forystuna eftir mikinn atgang í vítateignum í kjölfar aukaspyrnu langt utan af velli. Boltinn endaði hjá Birni sem skoraði í opið mark af stuttu færi.
Staðan var 1-2 í leikhlé en Þróttarar voru hættulegri aðilinn í síðari hálfleik og uppskáru jöfnunarmark eftir mistök í varnarlínu HK. Þróttur vann boltann hátt uppi á vellinum og skoraði Liam Daði Jeffs einn gegn markmanni.
Staðan var því orðin 2-2 á lokakaflanum en það var lítið að frétta þar til í uppbótartíma þegar HK fékk tvö frábær tækifæri til að stela sigrinum en misnotaði þau.
HK er í þriðja sæti eftir þetta jafntefli, með 18 stig úr 10 umferðum.
Þróttur er þremur stigum þar á efitr.
Athugasemdir