Paul Pogba og Ansu Fati eru báðir lentir í Mónakó og búnir að gangast undir fyrri hluta af læknisskoðun hjá AS Mónakó.
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greinir frá þessu og kemur fram að Mónakó vonast til að kynna báða þessa leikmenn til leiks um helgina.
Pogba kemur til Mónakó á frjálsri sölu eftir nokkur ár frá keppni vegna meiðslavandræða og leikbanns. Fati kemur á lánssamningi frá Barcelona, með kaupmöguleika.
Hér er um að ræða tvo afar gæðamikla fótboltamenn sem þóttu tveir af betri leikmönnum heims á sínum tíma en hafa heldur betur misst dampinn síðan þá.
Báðir hafa þeir þurft að glíma við erfið og tíð meiðslavandræði á ferlinum og því ákveðin áhætta fólgin í þessari aðgerð hjá Mónakó, sem endaði í þriðja sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tekur því þátt í Meistaradeildinni í haust.
Athugasemdir