Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
Halli eftir stórt tap: Vona að ég geti náð í menn ef þetta lagast ekki
Jóa fannst Grindvíkingar brotna - „Hann gerir bara svo mikið fyrir liðið"
Bergvin í gir eftir þrennu: Djöfull hlakka ég til að pakka Árna Guðna saman
Kristófer hat-trick hero: Okkar vantaði mörk og hann bað mig bara um að gera mitt
Gunnar Már: Rautt spjald, nýr markmaður og mark á okkur á sömu mínútu
Jökull: Kristófer algjörlega á deginum sinum og kláraði allt
Gústi Gylfa: Getum ekki byrjað leiki svona
Hemmi: Verður að opna töskuna og sjá hvað kemur upp
Ibrahima Balde: Fyrsta þrennan síðan ég var 16 ára gamall
Venni: Við erum með þá í lás
Haddi: Hefðum getað fengið á okkur fjögur mörk í fyrri hálfleik
Bjarni Jó: Við berjumst fyrir því að fá Jón Daða
Dóri Árna mjög léttur: Ekki gleyma Kidda Jóns
Túfa: Hann uppsker fyrir sína vinnu og þolinmæði
Cecilía: Þetta er ný regla og allir eru að læra hana
Karólína: Hún var svo reið inn á vellinum
Landsliðsþjálfarinn fékk mörg svör - „Þetta var það sem stóð til boða"
Siggi Höskulds: Ég held að Fjölnir hafi ekki fengið eitt einasta færi
Adam Ægir nýtti tækifærið í botn - „Ekki búið að vera auðvelt"
Fékk gjöfina sem hún vildi á stórafmælinu - „Er samt bara 25"
   fös 27. júní 2025 22:11
Haraldur Örn Haraldsson
Venni: Við erum með þá í lás
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er bara mjög sáttur við spilamennskuna og frammistöðuna," sagði Sigurvin Ólafsson þjálfari Þóttara eftir 2-2 jafntefli gegn HK í kvöld.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 -  2 HK

„Sem þjálfari er ég aðallega að horfa á þetta til lengri tíma. Þá fannst mér þetta frábært merki eftir ekki eins góða frammistöðu í síðasta leik. Þó að, ef við spáum í úrslitunum, þá er ég mjög svekktur að fá bara eitt stig. Því mér fannst við vera dóminerandi. Kannski ekki dóminerandi í fyrri hálfleik, en engar áhyggjur. Þeir skora bara eftir tvö upphlaup svo búið. Við erum bara með þá í lás, allan seinni hálfleik," sagði Sigurvin.

Bæði mörk HK komu úr föstum leikatriðum þar sem varnarleikur Þróttara hefði getað verið betri.

„Það er alltaf talað um það í þessum fræðum að gera betur í föstum leikatriðum. Á endanum er þetta bara að vera vakandi, og dekka mennina sína. Svo getur það gerst að boltinn hoppar hingað og þangað, eins og bara fyrra markið. Þá dettur hann inn í teig og hann skýtur bara á markið. Seinna markið þá ver Laddi (Þórhallur Ísak) tvisvar og þeir ná bara frákastinu. Við erum í því tilviki aðeins sofandi, en ég lýt ekki á þetta sem neitt vandamál," sagði Sigurvin.

Kári Kristjánsson og Njörður Þórhallsson voru ekki í hóp í dag, en það ætti ekki að vera langt í þá.

„Njörður er smávægilega meiddur, og Kári er að glíma við smá veikindi sem hann er að klára vonandi fljótlega. Þessvegna voru þeir ekki í hóp, en þá komu í staðinn Baldur og Hlynur sem var meiddur, þannig við veiktumst ekkert. Ég held það sé eitthvað í Kára en ég held að Njörður verður kominn á lappir fljótlega," sagði Sigurvin.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner