Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Atlético borgar 50 milljónir fyrir spænskan landsliðsmann
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Atlético Madrid er að vinna hörðum höndum að því að styrkja leikmannahópinn sinn eftir að hafa verið slegið úr leik í riðlakeppni HM félagsliða.

Atlético er þegar búið að kaupa markvörðinn Juan Musso frá Atalanta, sem lék á láni hjá Atlético á síðustu leiktíð, og eru þrír nýir leikmenn að bætast við hópinn. Einn þeirra er Johnny Cardoso miðjumaður Real Betis eins og greint hefur verið frá, en Álex Baena er einnig á leið til spænsku höfuðborgarinnar.

   25.06.2025 08:40
Atlético borgar rúmlega 30 milljónir fyrir Cardoso


Baena er 23 ára gamall kantmaður sem Atlético borgar 50 milljónir evra til að kaupa úr röðum Villarreal. Leikmaðurinn gaf munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Atlético fyrr í sumar.

Baena er spænskur landsliðsmaður með 2 mörk í 10 landsleikjum. Hann er lykilmaður í liði Villarreal og kom að 17 mörkum í 32 deildarleikjum á síðustu leiktíð.

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin.
Athugasemdir