
Antoine Semenyo, Bryan Mbeumo og Harvey Elliott koma allir við sögu í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Manchester United, Newcastle United og Tottenham gætu horft annað í leit að framherja eftir að Bournemouth krafðist þess að fá 70 milljónir punda fyrir Antoine Semenyo (25). (The I)
Arsenal er vongott um að geta náð samkomulagi við spænska varnarmanninn Cristhian Mosquera (21) sem er á mála hjá Valencia. (Guardian)
Bryan Mbeumo (25), leikmaður Brentford, hefur tilkynnt og Tottenham að hann vilji aðeins fara til Manchester United í sumarglugganum. (Athletic)
Enski miðvörðurinn Jarrad Branthwaite (23) mun skrifa undir nýjan fimm ára samning við Everton og þá er félagið einnig bjartsýnt á að geta haldið Idrissa Gueye (35) áfram út tímabilið. (Times)
Þýska félagið RB Leipzig hefur lýst yfir áhuga á því að fá enska miðjumanninn Harvey Elliott (22) frá Liverpool. Brighton og West Ham hafa einnig áhuga. (Mirror)
Antoni Milambo (20), miðjumaður Feyenoord í Hollandi, verður fyrsti leikmaðurinn sem Keith Andrews fær til Brentford í glugganum, en viðræður félagsins við Feyenoord eru komnar langt á veg. (London Evening Standard)
Leeds United hefur hafið viðræður við Juventus um að fá Douglas Luiz (27) til félagsins. (Calciomercato)
West Ham hefur áhuga á að fá Yunus Musah (22) frá AC Milan. Nottingham Forest hefur einnig átt í viðræðum við bandaríska landsliðsmanninn. (Tuttomercatoweb)
Forest er þá hætt að eltast við Timothy Weah (25), leikmann Juventus og bandaríska landsliðsins eftir að hann hafnaði samningstilboði félagsins. Forest hafði náð 19 milljóna punda samkomulagi við Juventus um Weah og belgíska vængmanninn Samuel Mbangula (21). (ESPN)
Newcastle ætlar að hækka tilboð sitt í Joao Pedro (23), framherja Brighton eftir að 50 milljóna punda tilboði var hafnað. (Talksport)
Aston Villa mun fá samkeppni frá Juventus og Lazio um Neil El Aynaoui (23), miðjumann Lens og U23 ára landsliðs Marokkó. (Calciomercato)
Eberechi Eze (26), leikmaður Crystal Palace, er meðal þeirra sóknarsinnuðu leikmanna sem Arsenal hefur áhuga á að kaupa, en Tottenham er einnig mjög hrifið af leikmanninum. (Sky Sports)
Athugasemdir