Það er ömurlegt að vinna ekki fótboltaleik og við byrjuðum á því að gefa þeim mark eftir tvær mínútur og það setti smá standard í leiknum og FH voru mun grimmari í öllum aðgerðum, miklu aggressívari, spörkuðu lengra en við og komu boltanum inn fyrir vörnina, pressuðu seinni bolta og voru bara sterkari á öllum vígstöðum sagði augljóslega mjög svekktur Rúnar Kristinsson eftir 3 - 0 gegn FH á Miðvelli í Hafnarfirði í dag.
Lestu um leikinn: FH 3 - 0 KR
Við ætluðum að halda áfram eins og kannski síðasta korterið í fyrri hálfleik þar sem við vorum kannski skárri aðilinn á þeim tímapunkti en svo byrjaði seinni hálfleikurinn illa og við náðum ekki að fylgja því eftir góðum endi á fyrri hálfleik og fórum kannski í sama farið og og svo skora þeir beint úr aukaspyrnu og staðan 2-0 og erfitt að koma til baka. Það er erfitt að spila á þessum fótboltavelli og bæði lið eru í löngum boltum.
Það er alltaf áhyggjuefni að tapa fótboltaleikjum og tapa 3-0 er ekki gott, alls ekki. En hver leikur hefur sitt líf og allt öðruvísi leikur en á móti Víkingum og allt aðrar aðstæður og öll mörkin í dag er eitthvað sem við erum ósáttir við.
Víkingsleikurinn tapast illa þótt að hann hafi verið að mínu viti ágætlega jafn í fyrri hálfleik þótt aðrir vilja meina eitthvað annað, en það eru menn sem hafa ekkert vit á þessu. Seinni hálfleikurinn hjá Víkingum var betri. En í dag vorum við undir í flestu að undanskildum þessum 15 mínútum í fyrri hálfleik
Þetta flakk um hvar leikurinn færi fram, geturu útskýrt hversu mkið það truflaði undirbúninginn fyrir leikinn?
Nei ég ætla ekki að tjá mig um það. Ætla að segja bara sem minnst. Ég nenni ekki að ræða það





















