Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 10:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrándheimi
Systurnar saman í herbergi - „Koma fram gamlar minningar"
Icelandair
EM KVK 2025
Arna Eiríksdóttir.
Arna Eiríksdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlín Eiríksdóttir.
Hlín Eiríksdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vill svo skemmtilega til að það eru systur í íslenska landsliðshópnum sem mætir Noregi í kvöld. Arna Eiríksdóttir var á dögunum kölluð inn í hópinn en fyrir var Hlín Eiríksdóttir þar.

Arna er yngri systir Hlínar og hún spilar á hinum enda vallarins; Hlín er sóknarmaður og Arna er varnarmaður. Arna hefur leikið frábærlega með FH í Bestu deildinni það sem af er sumri.

Arna ræddi við Fótbolta.net í vikunni og var þar spurð út í systur sína en þær eru herbergisfélagar í þessu landsliðsverkefni.

„Hún er búin að búa erlendis í langan tíma og það er mjög dýrmætt að fá að koma hingað og hitta hana. Við erum saman í herbergi og það er extra skemmtilegt," sagði Arna.

Er þetta bara eins og í gamla daga?

„Já, við deildum herbergi vel fram eftir aldri. Það koma fram gamlar minningar núna."

Hlín gekk fyrir stuttu í raðir Leicester sem er í ensku úrvalsdeildinni og er Arna ánægð með það.

„Þetta er allt önnur stærðargráða miðað við það sem hún hefur verið í. Það er allt mjög fagmannlegt og maður dáist að henni. Ég er enn að bíða eftir því að komast á leik hjá henni en það kemur vonandi bráðum," sagði Arna.
Athugasemdir
banner