Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 09:15
Elvar Geir Magnússon
Sterkastur í 9. umferð - Ætlaði að svara fyrir ömurlegan tíma með KR
Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Alvöru rýtingur frá Alex.
Alvöru rýtingur frá Alex.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex í leik með KR í fyrra.
Alex í leik með KR í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Alex Þór Hauksson setti tóninn í þessum leik og var kominn með tvær stoðsendingar og mark eftir ellefu mínútur. Hann var allt í öllu," segir Valur Gunnarsson í Innkastinu þegar fjallað var um 4-2 sigur Stjörnunnar gegn KR í 9. umferð Bestu deildarinnar.

„Alex ætlaði greinilega að svara fyrir þennan ömurlega tíma sem hann átti hjá KR. Hann var bara lélegur hjá KR. Markið hjá honum núna gegn KR var algjörlega geggjað," segir Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, um frammistöðu miðjumannsins.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  2 KR

Eins og Valur sagði þá var Alex kominn með tvær stoðsendingar og mark eftir aðeins ellefu mínútna leik. Alvöru rýtingur fyrir félagið sem hann spilaði fyrir í fyrra. Hann er Sterkasti leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.

Alex tók eitt ár hjá KR en stóð ekki undir væntingum. Eftir að hann yfirgaf félagið og gekk aftur í raðir Stjörnunnar síðasta vetur fór hann yfir tímabilið í viðtali við Fótbolta.net og kallaði það lærdómsríkt.

„Ég hef horft mikið á þetta og maður er sinn stærsti gagnrýnandi sjálfur. Auðvitað vill maður alltaf gera betur en ef maður horfir blákalt á þetta og rýnir í gögn, þá var þetta nokkuð fín frammistaða. Hún hefði auðvitað getað verið betri. Ég tek fulla ábyrgð á því sem ég hef fram að færa. Það er fullt af breytum í fótbolta en það fór sem fór. Ég held að við allir sem vorum hluti af þessum hóp höfum lært mikið af þessu," sagði Alex í janúar.

Í sjónvarpinu hér að neðan má sjá viðtal við Alex sem var tekið eftir leikinn í gær.

Leikmenn umferðarinnar:
8. umferð - Jakob Byström (Fram)
7. umferð - Kjartan Kári Halldórsson (FH)
6. umferð - Morten Ohlsen Hansen (Vestri)
5. umferð - Hrannar Snær Magnússon (Afturelding)
4. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
3. umferð - Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
2. umferð - Guðmundur Magnússon (Fram)
1. umferð - Rúnar Már Sigurjónsson (ÍA)


Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 6 2 1 18 - 8 +10 20
2.    Vestri 9 5 1 3 11 - 5 +6 16
3.    Breiðablik 9 5 1 3 14 - 15 -1 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 9 4 1 4 16 - 17 -1 13
6.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
7.    ÍBV 9 3 2 4 9 - 15 -6 11
8.    KA 9 3 2 4 9 - 16 -7 11
9.    KR 9 2 4 3 26 - 22 +4 10
10.    FH 9 3 1 5 15 - 14 +1 10
11.    Afturelding 9 3 1 5 8 - 13 -5 10
12.    ÍA 9 3 0 6 12 - 21 -9 9
Athugasemdir
banner
banner