Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 09:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrándheimi
Sveindís um kærastann: Hann þarf bara að elta mig
Icelandair
EM KVK 2025
Rob Holding og Sveindís Jane.
Rob Holding og Sveindís Jane.
Mynd: TikTok
Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum og í sumar eru flutningar planaðir til Los Angeles.

Kærasti Sveindísar er fótboltamaðurinn Rob Holding. Hann var að klára tímabilið á láni með Sheffield United en er samningsbundinn Crystal Palace í eitt ár til viðbótar.

Það er afar ólíklegt að Holding muni vera í plönum Crystal Palace en Sveindís vonast til þess að hann muni á endanum fylgja sér til Bandaríkjanna.

„Hann þarf bara að elta mig," sagði Sveindís og hló.

Er þetta ekki svolítið flókið?

„Það er flókið að vera með öðru afreksíþróttafólki, við erum bæði í íþróttum á háu stigi. Það er erfitt að púsla þessu saman. Hann er til í að fara til Bandaríkjanna þannig að ef einhver frá LA Galaxy eða LAFC er að hlusta, þá bara 'sign him'."

„Hann á eitt ár eftir hjá Crystal Palace en kemur vonandi til Los Angeles," sagði Sveindís.

Holding er 29 ára gamall og lék lengst af á sínum ferli með Arsenal en hann gekk í raðir Crystal Palace árið 2023. Þar hafa meiðsli strítt honum og hefur hann aðeins komið við sögu í einum leik, en hann spilaði tólf leiki á láni með Sheffield United eftir áramót.
Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna
Athugasemdir
banner