Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 30. janúar 2025 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea að krækja í Walsh frá Barcelona
Kvenaboltinn
Chelsea er að ganga frá kaupum á ensku landsliðskonunni Keira Walsh frá Barcelona.

Chelsea mun greiða um 800 þúsund pund fyrir Walsh sem Barcelona vildi upphaflega ekki selja til enska félagsins.

BBC fjallar um að tilboðinu hafi verið tekið seint í gærkvöldi og að Walsh fari til London í dag í læknisskoðun.

Walsh er 27 ára og fór til Barcelona frá Manchester City árið 2022. Spænska félagið greiddi þá 400 þúsund pund fyrir hana.

Walsh er sögð langa heim til Englands til þess að vera nálægt fjölskyldu sinni.

Kaupverðið er um 800 þúsund pund en getur hækkað út frá bónusgreiðslum. Það er undir heimsmetsverðinu sem Chelsea greiddi fyrir bandarísku landsliðskonuna Naomi Girma fyrr í þessum mánuði.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner