
Fjölnir 0 - 3 ÍR
0-1 Arnór Sölvi Harðarson ('10)
0-2 Sigurður Karl Gunnarsson ('16)
0-2 Renato Punyed Dubon ('44 , misnotað víti)
0-3 Renato Punyed Dubon ('45)
0-1 Arnór Sölvi Harðarson ('10)
0-2 Sigurður Karl Gunnarsson ('16)
0-2 Renato Punyed Dubon ('44 , misnotað víti)
0-3 Renato Punyed Dubon ('45)
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 3 ÍR
ÍR er komið á topp Lengjudeildar karla eftir þægilegan sigur á útivelli gegn Fjölni í kvöld.
ÍR-ingar gerðu út um leikinn með þremur mörkum í fyrri hálfleik, þar sem Arnór Sölvi Harðarson tók forystuna eftir langa sendingu á tíundu mínútu. Varnarmenn Fjölnis réðu ekki við boltann og var Arnór Sölvi sneggstur að átta sig.
Sex mínútum síðar tvöfaldaði Sigurður Karl Gunnarsson forystuna með skalla eftir hornspyrnu frá Breka Hólm Baldurssyni.
Fjölnismenn reyndu að minnka muninn þegar tók að líða á seinni hálfleikinn en tókst ekki. Þess í stað geystust ÍR-ingar upp í sókn og fengu dæmda vítaspyrnu.
Renato Punyed Dubon steig á vítapunktinn og klúðraði. Spyrnan fór í báðar stangirnar og svo í hælana á markverði Fjölnis en boltinn barst heppilega aftur til Renato sem fylgdi eftir með marki. Staðan orðin 0-3 í fyrri hálfleik.
Gunnar Már Guðmundsson þjálfari Fjölnis var gjörsamlega trylltur á hliðarlínunni og lét vel í sér heyra allan leikinn. Hann var afar ósáttur með dómgæsluna.
Fjölnismenn leituðu að marki í síðari hálfleik en fundu ekki. Þeim tókst ekki að minnka muninn svo lokatölur urðu 0-3.
´
ÍR er með 11 stig eftir 5 umferðir á meðan Fjölnismenn sitja eftir í fallsæti, með 2 stig.
Athugasemdir