Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 18:14
Elvar Geir Magnússon
Sá ákærði í harmleiknum í Liverpool mætti þreyttur og bugaður í dómsal
Paul Doyle.
Paul Doyle.
Mynd: Facebook
Frá vettvangi í Liverpoolborg.
Frá vettvangi í Liverpoolborg.
Mynd: EPA
Paul Doyle mætti í fyrsta sinn í dómsal í dag en hann hefur verið ákærður í sjö liðum fyrir að hafa keyrt bifreið inn í mannfjölda í Liverpool þar sem verið var að fagna Englandsmeistaratitli fótboltafélagsins Liverpool.

Doyle er 53 ára, þriggja barna faðir og fyrrverandi landgönguliði. Hann er ákærður fyrir að slasa að minnsta kosti 79 manns með því að aka vísvitandi á fólkið síðasta mánudag. Sex manns slösuðust alvarlega, þar á meðal ellefu ára barn, og einn þeirra er enn á sjúkrahúsi.

Hinir særðu voru á aldrinum níu til 78 ára, að sögn lögreglu, og um 50 manns þurftu á sjúkrahúsmeðferð að halda. Rannsókn er enn í gangi, það á eftir að skoða frekari sönnunargögn og ræða við fjölda vitna.

Dagur sem átti að einkennast af fögnuði og hátíðarhöldum í Liverpoolborg endaði með harmleik.

Doyle, sem er frá West Derby hverfinu í Liverpool, var í breska sjóhernum á árunum 1990 til 1994 áður en hann starfaði í upplýsingatækni og netöryggi.

Eftir tólf mínútna réttarhöld þar sem ákærurnar voru lesnar upp var Doyle úrskurðaður í gæsluvarðhald. Einu orð hans í dómsalnum voru þau að hann staðfesti nafn sitt og fæðingardag. Hann á næst að mæta í dómsal í ágúst og að réttarhöldin sjálf eiga að hefjast í nóvember.
Athugasemdir
banner
banner