Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 16:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stjórnendur tvístígandi yfir Leroy Sané
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Leroy Sané virðist vera á förum frá FC Bayern í sumar og eru mörg félög áhugasöm um að tryggja sér þjónustu hans.

Sané fer á frjálsri sölu og hefur einna helst verið orðaður við Arsenal sem er í leit að fjölhæfum kantmanni fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni.

Sky Sports greinir þó frá því að stjórnendur Arsenal séu tvístígandi yfir Sané, sem er 29 ára gamall og með háar launakröfur. Hann er reynslumikill leikmaður sem getur spilað á báðum köntum og gæti reynst afar nytsamlegur í mögulegri titilbaráttu á næstu leiktíð.

Þeir eru smeykir um að hann sé ekki lengur uppá sitt besta og óttast að lenda í svipuðum vandræðum með hann og þeir lentu í með Raheem Sterling, sem kom til Arsenal á lánssamningi síðasta sumar en mistókst að láta ljós sitt skína. Sterling og Sané hafa báðir áður starfað með Mikel Arteta, þjálfara Arsenal, þegar hann var aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá Manchester City.

Arsenal hefur mikinn áhuga á Nico Williams kantmanni Athletic Bilbao og gætu stjórnendur kosið að festa kaup á honum frekar en að semja við Sané. Sú aðgerð yrði þó talsvert kostnaðarsamari fyrir félagið.

Sané kom að 19 mörkum í 45 leikjum með FC Bayern á nýliðnu tímabili þar sem hann hjálpaði liðinu að endurheimta Þýskalandsmeistaratitilinn.

Tottenham, Manchester United og Juventus eru meðal félaga sem hafa einnig verið orðuð við Þjóðverjann.

Sané hefur skorað 14 mörk í 69 landsleikjum fyrir Þýskaland.
Athugasemdir
banner