Ásdís Karen Halldórsdóttir var á skotskónum með portúgalska liðinu Braga í 4-1 sigri á Vitoria Guimaraes í portúgalska deildabikarnum í dag.
Þessi 26 ára gamla fótboltakona var með stoðsendingu í síðasta leik og gerði síðan þriðja mark liðsins í leiknum gegn Vitoria í dag.
Braga hafnaði í 3. sæti A-riðils með 7 stig og rétt missti því af sæti í undanúrslitum keppninnar.
Kristján Guðmundsson og stöllur hans í Damaiense töpuðu fyrir Torreense, 2-0, í B-riðli.
Damaiense tapaði öllum leikjum sínum í riðlinum og er án sigurs í öllum keppnum síðan í september.
Hildur Antonsdóttir var í byrjunarliði Madrid CFF sem tapaði fyrir Levante, 2-1, í Liga F á Spáni. Madrid er í 7. sæti með 26 stig eftir átján umferðir.
Athugasemdir


