Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
   lau 31. janúar 2026 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Barcelona á mikilli siglingu - Rashford og Yamal skoruðu
Marcus Rashford skoraði fjórða deildarmark sitt með Barcelona
Marcus Rashford skoraði fjórða deildarmark sitt með Barcelona
Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona unnu fimmtánda leikinn í síðustu sextán í öllum keppnum er liðið hafði sigur gegn Elche, 3-1, í La Liga í kvöld.

Spænska undrabarnið Lamine Yamal skoraði 13. deildarmark sitt á tímabilinu.

Börsungar unnu boltann á miðsvæðinu og var það Dani Olmo sem sendi Yamal í gegn sem kom sér framhjá markverðinum og setti boltann í netið. Hann hefur nú komið að 26 mörkum í 28 leikjum í öllum keppnum sem er hans næst besta tímabil til þessa ef horft er á mörk og stoðsendingar.

Alvaro Rodriguez jafnaði metin á 29. mínútu en Ferran Torres kom Börsungum aftur yfir áður en hálfleikurinn var úti. Englendingurinn Marcus Rashford setti sitt fjórða deildarmark tuttugu mínútum fyrir leikslok og kom Barcelona í fjögurra stiga forystu á toppnum í deildinni.

Levante og Atlético Madríd gerðu óvænt markalaust jafntefli. Atlético er í 3. sæti með 45 stig en Levante í næst neðsta sæti með aðeins 18 stig.

Osasuna 2 - 2 Villarreal
0-1 Gerard Moreno ('17 , víti)
1-1 Victor Munoz ('20 )
2-1 Ante Budimir ('45 )
2-2 Gerard Moreno ('70 )

Elche 1 - 3 Barcelona
0-1 Lamine Yamal ('6 )
1-1 Alvaro Rodriguez ('29 )
1-2 Ferran Torres ('40 )
1-3 Marcus Rashford ('72 )

Levante 0 - 0 Atletico Madrid

Oviedo 1 - 0 Girona
1-0 Ilyas Chaira ('74 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 22 18 1 3 60 23 +37 55
2 Real Madrid 21 16 3 2 45 17 +28 51
3 Atletico Madrid 22 13 6 3 38 17 +21 45
4 Villarreal 21 13 3 5 39 23 +16 42
5 Espanyol 22 10 4 8 26 27 -1 34
6 Betis 21 8 8 5 34 27 +7 32
7 Celta 21 8 8 5 29 23 +6 32
8 Real Sociedad 21 7 6 8 29 29 0 27
9 Osasuna 22 7 5 10 26 27 -1 26
10 Alaves 22 7 4 11 20 27 -7 25
11 Girona 22 6 7 9 21 36 -15 25
12 Elche 22 5 9 8 30 32 -2 24
13 Sevilla 21 7 3 11 28 33 -5 24
14 Athletic 21 7 3 11 20 30 -10 24
15 Valencia 21 5 8 8 22 33 -11 23
16 Vallecano 21 5 7 9 17 28 -11 22
17 Getafe 21 6 4 11 16 27 -11 22
18 Mallorca 21 5 6 10 24 33 -9 21
19 Levante 21 4 6 11 24 34 -10 18
20 Oviedo 22 3 7 12 12 34 -22 16
Athugasemdir
banner