Newcastle hefur náð samkomulagi við Independiente del Valle frá Ekvador um að Johan Martinez muni ganga til liðs við enska félagið.
Hann mun ekki verða leikmaður Newcastle formlega fyrr en á næsta ári þegar hann verður orðinn 18 ára gamall.
Fabrizio Romano greinir frá því að félögin muni klára skiptin í þessari viku.
Hann er að stíga í fótspor Moises Caicedo en hann gekk til liðs við Brighton frá Independiente del Valle árið 2021.
Athugasemdir

