Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   þri 31. mars 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Þorleifur skoraði eitt af mörkum vikunnar
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þorleifur Úlfarsson gekk til liðs við Loudoun United í USL deildinni í Bandaríkjunum frá Breiðabliki í vetur.

Deildin hófst þann 14. mars en liðið er búið að spila þrjá leiki. Úrslitin hafa ekki verið nægilega góð en liðið er aðeins með eitt stig.

Þorleifur skoraði hins vegar í sínum fyrsta leik og hann skoraði síðan annað mark um helgina í 3-1 tapi gegn Tampa Bay.

Hann skoraði þá laglegt mark beint úr aukaspyrnu en markið hefur verið tilnefnt sem eitt af mörkum vikunnar. Sjáðu markið hér fyrir neðan.


Slapp
Athugasemdir
banner